Jæja þá er sumarið komið á hreint hjá mér. Ég fer heim 21. júní
ásamt henni Dísu beib og flýg svo aftur hingað út 10. júlí! Ohhhhhh
hvað það verður nú gott að komast heim.
Hlakka til að sjá hele familien og svo jafnast auðvitað ekkert á
við matinn sem er eldaður í Hagaselinu heiða... 
Ég verð að vinna sem eldhúsdama í sumar á elliheimilinu sem er
bara hérna beint á mót mér. 20 sec á leiðinni í vinnuna! Nice.....
Ekki beint skemmtilegasta vinna í heimi en.... samt
eitthvað...
Ég fæ bara svipað út út því að vinna í þessu eldhúsi og að
vinna í aðhlynningu heima. Hærri laun hér en hef vinnu í skemmri
tíma, en þar á móti kemur að ég get jafnvel fengið vinnu með skóla
sem er bara juttebra!
Og svo eyði ég öllu sumarinu með honum Óla
mínum... 
Nonni bróðir og hans hele familie kemur svo hingað út til mín
11. júl og verður fram til 22. júlí sem er alveg frábært!
Annars þá er erfitt að einbeita sér að prófum... 28 stiga hiti
úti í dag. Hinsvegar er spáð rigningu um helgina þannig að þá læri
ég...
.... Það er eiginlega bannað að sitja inni þegar það er
sól... það finnst mér amk. Er búín að sitja með bækurnar úti á
svölum síðustu daga, bara verst að sólin skín bara á vinstri
helminginn af mér og minna á þann hægri, þannig að maður verður
bara svona skemmtilega röndóttur... 
Var reyndar að stinga upp á því að við Dísa yrðum bara að skella
okku í ljós og láta bara skína á hægri helminginn... hmmmm....
kemur í ljós hvað við gerum!
Á eitt próf og eitt verkefni eftir og þá, ef ég næ öllum
prófum er ég búin með þennan bachelor og á bara kandidatinn
eftir ...
chio 4 now,
knús, Berglind baun (samt ekkert hint!)