Varð að láta þessa
frétt inn sem ég sá á visi.is! Hahahahahaha
Vísir, 15. maí. 2007
15:55
Graðnagli gripinn í
hjálpartækjaverslun
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær
ungan karlmann sem virðist ásælast hjálpartæki ástarlífsins meira
en góðu hófi gegnir. Pilturinn var fyrst gripinn á föstudag í einni
af hjálpartækjabúðum borgarinnar þar sem hann reyndi að stela þaðan
vörum.
Aðfaranætur laugardags og sunnudags var svo brotist inn í
verslunina og söknuðu eigendur hennar meðal annars svokallaðs
stinningartækis fyrir karlmenn. Þegar myndir úr öryggismyndavél
voru skoðaðar lék lítill vafi á því að pilturinn hefði verið þar á
ferð í bæði skiptin og var hann handtekinn þegar hann kom í búðina
aftur í gær, í fjórða skiptið á fjórum dögum. Lögregla segir engar
skýringar hafa fengist á þessu hátterni piltsins.
Hver ætli skýringin sé á hátterni piltsins?



Knús, Berglind