Berglind og Óli

Berglind og Óli

14.11.2007 16:35:57 / Berglind

Hann er þá til eftir allt!!!

 

Tók þessa frétt af MBL í dag... Hugrakkur snáði!

Kóngulóardrengur bjargaði ungbarni úr brennandi húsi

Hinn fimm ára gamli Riquelme Wesley dos Santos frá Palmeira í Brasilíu vill, líkt og margir aðrir, láta kalla sig Kóngulóarmanninn. Það eiga líklega fáir jafn mikla heimtingu á því og hann því þegar eldur kom upp í húsi nágrannans vissi hann upp á hár hvað hann ætti að gera, hann klæddi sig í Kóngulóarmannsbúninginn sem hann hafði fengið í afmælisgjöf, hljóp inn í brennandi húsið og bjargaði eins árs gamalli stúlku frá eldinum. Fréttavefur sænska blaðsins Aftenposten segir frá þessu.

Stúlkubarnið, Andriele, lá bjargarlaust í vöggu sinni, en liðið hafði yfir ömmu hennar sem var heima þegar eldurinn kom upp. Nokkrir unglingar fóru svo inn í húsið á eftir Riquelme og björguðu ömmunni.

Drengurinn er orðinn hetja í sinni heimabyggð og berst hróður hans nú um heiminn. Pilturinn segist ekki hafa verið hræddur þegar hann fór inn í brennandi húsið, en að hann hafi hins vegar áttað sig á hættunni eftir að hann var kominn út.

 

Knús, 

 Berglind


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 09:59:27 / Berglind

:o(

Hvað er búið að gerast með TVlinks???:(

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 12:45:44 / Berglind

Góð helgi...

Ansi góð helgin sem var að líða... Huggstund hjá okkur Þórdísi, Freydísi, Ingibjörgu Heklu og Katrínu Bríet heima hjá henni Freydísi á föstudaginn... Freydís náði í McDonalds fyrir okkur og við borðuðum borgarana af bestu list gúffuðum í okkur gotteríi og horfðum á Biggu Jóns... Í gær, laugardag, var síðan smá teiti heima hjá Þórdísi. Áður en við fórum að fá okkur eitthvað við þorstanum sem virtist hrjá okkur öll stukkum við út á barinn og keyptum okkur inn á staðinn þar sem þeir hleypa bara 250 manns inn. Síðustu skipti höfum við lent i veseni þar sem það hefur verið uppselt... Þegar við komum á staðinn, klukkan 21, var þegar ansi myndarleg röð farin að myndast þannig að við vorum fegnar að hafa farið að kaupa miða á þessum tímapunkti. Síðan fórum við aftur heim til Þórdísar þar sem við drukkum strawberry daiquiri, smá öl og opalskot... (hefði heldur látið opalið vera..). Við kíktum síðan á barinn en stoppuðum mjög stutt... svitalyktin þarna inni var að gera út af við okkur! Einhverjar vildu skella sér niður í bæinn þannig að við kíktum allar á Froggies. Þegar leið á kvöldið fórum við Þórdís og Þórdís heim úr bænum sökum sárra fóta Þórdísar... Díslí litla skipti um skó, fór í dansskóna og við skelltum okkur á barinn og tókum nokkur spor...

 

 

Læt nokkrar myndir fylgja með frá kvöldinu... meira af myndum má síðan finna á myndasíðunni minni...

 

stelpudjamm sept 2007 004

Röðin fyrir utan barinn klukkan 21...

 

stelpudjamm sept 2007 015

Þórdís og Guðný góðar hvor við aðra

 

stelpudjamm sept 2007 016

Guðný sæta tók nokkra góða slagara

 

stelpudjamm sept 2007 037

Halldís, nafna mín og moi í góðum gír á Froggies

 

stelpudjamm sept 2007 040

Þórdís þyrst að vanda og Berglind og Elín í góðri sveiflu

 

 

stelpudjamm sept 2007 043

Nöfnurnar í trylltum dansi

Læt þetta duga í bili,

 

Berglind baunalingur

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 17:36:01 / Berglind

!!!

OMG!!! 8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 14:03:15 / Berglind

HANN Á AFMÆLI DAG... HANN Á AFMÆLI Í DAG....

 

Ástin mín eina sanna á afmæli í dag! :D Til hamingju með daginn fallegastur!!!

 

Oli saeti


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 16:12:45 / Berglind

Klár kella! hehe

Brynja beib sendi mér þennan brandara... ákvað að skella honum hérna inn... :haha:

 

Ella var á golfæfingu dag einn er hún hitti illa við átjándu holu og

golfkúlan lenti beint inni í runna.

 

Þegar hún ætlaði að fara að skríða eftir henni sá hún hvar lítill

sætur froskur var fastur í gildru , um leið og hún losaði hann sagði

froskurinn: Nú færð þú þrjár óskir uppfylltar en ég verð að segja þér frá því að

það sem þú óskar þér fær maðurinn þinn tífalt meira af. Ella sem var

mjög glöð og hugsaði með sér að það yrði allt í lagi.

Fyrsta ósk hennar var að hún yrði fallegasta kona heims.

Froskurinn varaði hana við og sagði henni að þá yrði maðurinn hennar einning fallegasi maður heims.

Ella hugsaði með sér að það yrði fínt, hún væri hvort sem er fallegasta

konan og að maðurinn hennar hefði ekki augun af henni. KAZAM..... og hún

varð að fallegustu konu heims.

Annari ósk sinni varði hún í að biðja um að verða ríkasta kona

heims. Þá sagði froskurinn : Þá mun maðurinn þinn verða 10 sinnum ríkari en þú.

Ella svaraði : það er allt í lagi , allt hans er mitt og allt mitt er

hans. KAZAM..... og hún varð ríkasta kona heims.

Þá sagði froskurinn: Jæja þá áttu aðeins eina ósk eftir, hver er hún?

Ella svaraði: Ég vil fá vægt hjartaáfall.

KONUR ERU KLÁRAR, EKKI ABBAST UPP Á ÞÆR :)

 

Knús,

baunalingur


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 15:34:59 / Berglind

Ein í kotinu.... :o(

Það er margt búið að bralla síðan síðast! Allar heimsóknir yfirstaðnar og ekki laust við að veröldin hérna í Odense sé ögn tómlegri...:( Ekki von á neinum í heimsókn á næstunni... þannig að það er um að gera að flýta sér að heimsækja okkur turtildúfurnar... áður en við flytjum heim (styttist óðum í það)...

Það var alveg æðislegt að fá Söndru og Ölmu í heimsókn og margt skemmtilegt brallað. Við röltum að sjálfsögðu aðeins um bæinn og skoðuðum ýmsa aðlaðandi túristastaði... þá helst H&M... Þær mæðgur náðu aðeins að versla sér... bara þetta bráðnauðsynlegasta... Síðan var auðvitað líka kíkt í Bilka og shoppað aðeins þar... Við píurnar skelltum okkur svo í BonBonland sem ég mæli hiklaust með... Mjög skemmtilegur skemmtigarður og öll leiktækin leyfð börnum sem hafa náð 130 cm hæð nokkur voru bönnuð þeim sem voru ekki orðin 140 cm nema í fylgd með fullorðnum...

Við keyrðum í BonBonland á glæsirennireiðinni sem við erum með í leigu (hjá Bósa litla)... Ég sat undir stýri og Sandra las kortið! Mikið vorum við klárar og rötuðum vel... Þeir sem þekkja mig vita að ég er mjög gjörn á það að taka fólk í auka alveg óvænta en fullkomnlega fyrirfram ákveðna útsýnistúra... Ég lét af flestum slíkum útsýnistúrum enda var ég með alveg afbragðs kortalesara, GPS hvað segi ég nú bara...

Jæja í BonBonlandi var geggjað veður og margt um manninn... Við vorum ekki búnar að stoppa lengi þegar Alma Maggey kom auga á stærsta rússíbanann og lagði til að við myndum byrja á honum (móður sinni ekki til mikillar ánægju, sem lét sig nú samt hafa það og kom með okkur í rússíbanann...) Múttan hennar Ölmu hugrökku var ekki alveg að gúddera þessa adrenalínfíkn í 7 ára gamalli dóttur sinni en vildi samt ekki vera minni maður (kona/stúlka) en dóttir sín og kom með okkur í flest tækin. Við áttum góðan dag í BonBonlandi og héldum þreyttar af stað yfir brúna heim á leið...

Við fórum ásamt ástarpunginum mínum í heimsókn til Jóa og Auðar og hittum þau, krílin þeirra og tengdó. Ég Sandra og Alma gistum þar eina nótt og héldum svo í Legoland (með stuttri viðkomu i bestseller) en Óli gisti hjá Jóa og Auði í tvær nætur.

Þegar við komum inn í Legoland áttum við leið hjá sviði þar sem verið var að tilkynna að trúðasýning myndi hefjast innan skamms... Frábært hugsuðum við með okkur... ég spyr Söndru hvort við eigum bara ekki að tilla okkur fremst þar sem það voru laus sæti þar... jú henni leist ansi vel á það... við komum okkur allar vel fyrir og svo hófst showið... Eitthvað horfði trúðurinn undarlega til okkar... hann fór síðan að blikka okkur og setur stút á varirnar og smellir kossi út í loftið í áttina til okkar. Nei segir Sandra og horfir djúpt í augun mín... ekki laust við vott af smávegis eftirsjá í augum hennar hvað varðar sætaval... Ég hristi hausinn þar sem mér fannst athygli hans vera beint í áttina til mín... Síðan tekur trúðurinn á rás og stekkur af sviðinu og stillir sér upp fyrir framan okkur... Hann horfir á mig hrisstir hausinn og hreyfir hendur sinn á þann veg sem ég tel mig geta lesið úr, var að vinna verkefni um líkamsmál síðustu önn, að lýsi vanþóknun... Þá hlakkar í minni og gleðibros færist yfir andlit mitt þegar augu mín og systur minnar mætast... Nei- nei-nei hljóðar systir mín og heldur augnsambandi við mig er trúðurinn réttir henni hönd sína og brosir undurblítt til hennar og tjáir mikla hrifningu með höndum sínum. Nei segir Sandra og hristir hausinn... leitar að styrk hjá systur sinni sem er við það að verða máttlaus af hlátri... Ég get þetta ekki segir hún... ég næ að kreista upp úr mér orðunum jú auðvitað... koma svo... á milli hláturskviða. Alma Maggey sem situr við hliðina á mér hlær að þessu líka... Ég græt af hlátri en hafði samt vit á því að ná í myndbandsupptökuvélina sem hún systir mín var svo forsjál að taka með sér í Legoland. Trúðurinn lætur Söndru gera ýmis trix... sem innihalda vatn hljóðnema og ýmislegt annað... á milli þess sem hann tjáir henni ást sína og hrifningu með ýmsum handahreyfingum og látbragði... ohh hvað ég er fúl yfir því að eiga ekki afrit af þessari myndbandsupptöku því þá myndi ég setja það hérna inn á bloggið mitt.. Verst var að rafhlaðan kláraðist samt áður en showið var búðið... Trúðurinn kveður Söndru, sem var þá búin að vera dágóða stund uppi á sviði hjá honum með orðunum “I´ll see YOU in my dressingroom after the show”... Söndru hefur orðið eitthvað um við þessi ummæli hans, enda harðgift kona, svoleiðis að þegar hún steig niður af sviði og gekk að sætinu sína fipaðist henni fótur sem leiddi til þess að hún tók eitt mjög svo fagmannlegt splittstökk (enda mikil lipurtá) til þess að falla ekki killiflöt... Þetta varð til þess að vekja enn meiri kátínu hjá þeim sem voru þarna að horfa á sýninguna... Alma Maggey hafði spurt mig hvað trúðurinn sagði þarna í lokin við hana Söndru og ég sagði henni það... Því er það svo sem ekkert undarlegt að eftir að sýningunni lauk spurði Alma Maggey mömmu sína hvort að hún ætlaði ekki að fara að hitta trúðinn í búningsherberginu hans! :haha::haha::haha:

Legolandferðin var mjög skemmtileg og var litla manneskjan í hópinum orðin ansi þreytt er við héldum heim á leið :D

odense jãºlã­ 2007 105

Alveg búin á því eftir Legoland...

odense jãºlã­ 2007 061

Sandra og loverboy (til hægri á myndinni) ;)

odense jãºlã­ 2007 080

Alma Maggey með hluta af tívolívinningum sínum. Við systurnar reyndum að vinna inn bangsa fyrir hana... keyptum t.d. sex bolta til að kasta ofan í rör... tveir boltar á mann... Alma hitti báðum og við engum... Hún vann alla þessa vinninga alveg sjálf, við klúðruðum alltaf okkar skotum:S...

Það var margt annað skemmtilegt brallað og ýmis gullkorn sem fuku af vörum systurdóttur minnar, þar má helst nefna...

  • McDonalds happymeal
  • Jensens 21:29 borgari - - - McDonalds shake 22:00... Mikið hlegið:haha:
  • Alma Maggey: Ef þér finnst Óli ekki skemmtilegur (Berglind) þá get ég alveg verið kærastan hans
  • McDonalds

Tíminn bókstaflega flaug og þegar þær mæðgur héldu af landi brott til síns heima komu foreldrar hans Óla til okkar... Alltaf jafn yndislegt að fá þau... Bara verst að við Óli vorum bæði að vinna allan tímann á meðan þau voru hérna... en við létum það ekki stoppa okkur alveg... fórum á rúntinn, grilluðum og höfðum það huggulegt... Þau yfirgáfu okkur svo og fóru á annað heimili sitt... í Alecante... Hjúin voru að kaupa sér íbúð þar... verður nú frábært að fara þangað einhvern daginn öll saman...;)

Tveimur dögum síðar komu þær Unnur og Þórey til mín... Þær stoppuðu stutt (tvær nætur) en það var alveg frábært að fá þær... tími til kominn að þær létu sjá sig. Við kíktum aðeins út á lífið fengum okkur öllara eða tvo og höfðum það virkilega gott. Við kíktum að sjálfsögðu líka í the main turist attraction - - - H&M og þar gátu píurnar verslað aðeins... Þær yfirgáfu mig síðan á sunnudegi og héldu til Andreu (frænku hennar Unnar) sem var svo frek að vilja fá þær til sín líka... Ég get því miður engar myndir sett inn frá heimsókn þeirra þar sem að ég ætlaði að fá að afrita myndirnar sem að þær tóku en gleymdi því síðan...

Dásamlegar heimsóknir og viðburðaríkur júlímánuður... Ágúst, sept og okt eru opnir! Any takers???

Knús í bili og bravó til þeirra sem hafa nennt að lesa þessa löngu færslu...

Berglind baun


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 19:34:29 / Berglind

Híhíhíhí

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 14:10:01 / Berglind

Góðar stundir... :o)

Hamingja hamingja! Hér á bæ er eintóm hamingja! Stóðst öll prófin, námslánin handan við hornið og bara mastersritgerðin eftir!:haha: Ahhhhhhh....

 

Kom heim til DK af klakanum á sunnudaginn... ohhh hvað það var dásamlegt að hitta familíuna...:D Styttist í að ég flytji þangað endanlega! Bara að við náum að skila vekefninu í febrúar... það var nefnilega verið að hræða okkur með því að fólk kláraði það aldrei á 6 mánuðum...8| Daninn er bara greinilega ekki eins kraftmikill og við hinir íslensku víkingar... Við Þórdís vinnum verkefnið saman og VERÐUM hreinlega að klára það á tíma, ekki hvað síst upp á námslánin... við tökum þetta í nösina... ekkert mál!8)

 

Jamms það var æðislegt að hitta familíuna og ekki hvað síst litlu krílin sem stækka allt of hratt þrátt fyrir síendurteknar skipanir frænku þeirra um að hætta að stækka á meðan hún er að þvælast í útlöndunum!

 

Á Íslandi var margt brallað... fór m.a. að veiða, í útilegu, heimsóknir, á djammið og passaði aðeins krílin mín...

Hérna má sjá nokkrar myndir frá Íslandsdvöl minni... (Fleiri myndir eru síðan inni á myndasíðunni minni)

 

ã­sland jãºnã­ 2007 011

 

Sandra “wormkiller” Gunnarsdóttir

 

ã­sland jãºnã­ 2007 024

 

Þorsteinn og pabbi í bakgrunn

 

ã­sland jãºnã­ 2007 062

 

Stefán Logi í fellihýsinu

 

ã­sland jãºnã­ 2007 065

 

Sandra og Stefán...

 

ã­sland jãºnã­ 2007 015

 

Arnaldur Gunnar brosmildur að vanda

 

ã­sland jãºnã­ 2007 027

 

Sandra og Þorsteinn...

 

ã­sland jãºnã­ 2007 097

 

Mútta og Arnaldur Gunnar

 

ã­sland jãºnã­ 2007 127

 

Jóhann Valur

 

ã­sland jãºnã­ 2007 006

 

Alma Maggey

 

ã­sland jãºnã­ 2007 096

 

Vilborg Lóa

 


Óli kom til Íslands fjórum dögum á eftir mér en við flugum heim til DK saman... Aldrei þessu vant gekk heimferðin vonum framar... vanalega þegar við Óli ferðumst saman rétt missum við af lestinni eða það er seinkun eða einhver þess háttar skemmtilegheit. Þetta skiptið gekk bara allt upp! Töskurnar okkar komu upp á færibandið í fyrsta holli og við þegar við vorum komin að miðasölunni voru 10 mín. í lestina okkar! Hefði ekki getað gengið betur! Síðan vorum við komin í kotið okkar rétt um klukkan 23:30...

 

Ég er byrjuð að vinna á fullu í edhúsjobbinu sem ég er búin að vera með síðan síðasta sumar...

Það er alveg ágætt að vera það ekki hvað síst vegna þess að Dísa litla lipurtá er einnig farin að vinna þar. Ég á hinsvegar fríhelgi þessa helgi sem er dæææææligt! Komin í helarfrí!

 

Júlímánuður verður sko ekki leiðinlegur hjá okkur Óla! Núna 16. júlí koma mæðgurnar Sandra og Alma Maggey og verða hjá okkur í u.þ.b. viku... reyndar hittir svo á að helgin 21. og 22. júlí var búið að plana að hitta múttu og pápa hans Óla og að við myndum öll renna til þeirra Jóa og Auðar og eyða helginni þar... ég mundi ekkert eftir því þegar Sandra var að tala um að koma í heimsókn til mín og þegar Óli minnti mig á það var Sandra nýbúin að bóka ferðina hingað út! Ég fékk smá bömmer... gleymna ég... Eeeen þetta er bara allt í lagi... Foreldrar hans Óla eyða einhverjum dögum hjá okkur eftir þá helgi og svo þýðir þetta einfaldlega að við Óli verðum bara að bruna einhvern daginn í heimsókn á herragarðinn þeirra Jóa og Auðar!

 

Systir mín og Alma Maggey verða sem sagt hérna frá 16. til 22. júlí og þá koma foeldrar hans Óla og verða hjá okkur í einhverja daga. Síðan þann 27. og 28. júlí kemur Unnur og ef til vill Þórey líka! Þannig að júlímánuður verður ekki einmannalegur þetta árið! Ágúst er opinn ef einhver hefur áhuga!

 

Ég hlakka mikið til fyrstu heimsóknarinnar sem og þeirra allra! Og Sandra ég skal skanna hvort að ekki verði einhverjar útsölur eða ómissandi markaðir á þim tíma sem þið komið til mín!

 

Læt þetta duga þetta skiptið!

 

Knús og kossar,

 

Berglind baunalingur


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 22:58:46 / Berglind

VÁ!!!

Varð að henda inn þessu myndbandi... þessi litla 12 ára stelpa syngur rosalega fallega... Maður fær bara gæsahúð...

Annars er litið að frétta úr veldi bauna þessa dagana. Ég á enn eitt próf eftir, fer í það 20. júní og svo er það bara home sweet home í 10 daga! Ohhh hvað ég hlakka til!!!

 

Knús í bili,

Berglind


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 23:49:18 / Berglind

HAHAHAHAHA...........

HAHAHAHAHAHA.....:lol::lol::lol:

Þetta hlýtur samt að vera djók! Annars er Kaninn nú alltaf ansi spes... þannig að það er aldrei að vita.

 

Verðið að horfa alveg til enda, þetta er stutt myndband!

 

 

Annars lítið að frétta... bara próf...:cry:

Knús,

Berglind baun


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 17:21:01 / Berglind

Höhömmmmm....

Varð að láta þessa frétt inn sem ég sá á visi.is! Hahahahahaha
 
 
Vísir, 15. maí. 2007 15:55

Graðnagli gripinn í hjálpartækjaverslun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær ungan karlmann sem virðist ásælast hjálpartæki ástarlífsins meira en góðu hófi gegnir. Pilturinn var fyrst gripinn á föstudag í einni af hjálpartækjabúðum borgarinnar þar sem hann reyndi að stela þaðan vörum.

Aðfaranætur laugardags og sunnudags var svo brotist inn í verslunina og söknuðu eigendur hennar meðal annars svokallaðs stinningartækis fyrir karlmenn. Þegar myndir úr öryggismyndavél voru skoðaðar lék lítill vafi á því að pilturinn hefði verið þar á ferð í bæði skiptin og var hann handtekinn þegar hann kom í búðina aftur í gær, í fjórða skiptið á fjórum dögum. Lögregla segir engar skýringar hafa fengist á þessu hátterni piltsins.

 

 

Hver ætli skýringin sé á hátterni piltsins? :lol::lol::lol:

 

 

Knús, Berglind 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 14:05:00 / Berglind

Remember Paris....

Ja hérna jæja.... Hvað er orðið að heiminum í dag þegar þetta blessaða fræga fólk getur ekki bara eiginhandaráritað sig leiðina út úr vandamálunum...Jamms það er sorgardagur i lífi Paris Hilton áðdáenda... Stúlkuanginn á leiðinni á bak við lás og slá... og aumingja hún sem vissi ekki einu sinni að hún væri búin að missa ökuprófið!....:$ Hérna að neðan má sjá myndbrot frá frétt af þessu máli!

 

 

Smá reality check....

 

Jæja knús úr sólinn í baunaveldi:haha:... eins gott að reyna að nýta sér hana aðeins áður en það fer að rigna:S... Spáð rigningu alla næstu viku!

 

Berglind baun


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 15:24:17 / Berglind

Alvaran tekin við... :oS

Jæja þá er gleðin úti og avaran tekin við! :$ Best er að byrja á byrjuninni! Barcelona er frábær borg! Rosalega falleg og alveg hellingur sem hægt er að skoða þar! Þúsund þakkir fyrir gestrisnina Guðný Brá og Fredrik, og takk fyrir okkur og samveruna Guðný, Fredrik og tengdó!:haha: Það var margt brallað í Barcelona og margt skoðað við fórum t.d. á Olympíuleikvanginn og horfðum á Espaniol og Real Sociada etja köppum sínum saman, þar var ágætis stemmning þrátt fyrir að það hefð ekki verið uppselt... við skoðuðum Nou camp sem er heimavöllur Barcelona og rúmar 90.000 manns!!! Ég get því miður ekki sett inn neinar myndir þar sem við Óli klikkuðum all svakalega á því! Gleymdum myndavélinni heima! En það reddaðist samt þar sem við fáum myndir sendar frá Guðný Brá!

 

 

Einnig skoðuðum við dómkirkjuna, sem er teiknuð af Gaudi, sem hefur verið 100 ár í smíðum og þeir stefna á að ljúka árið 2020! Gaman að sjá hvort það gangi upp! En þessi kirkja er engin smá smíð og svolítið drungaleg! Svona eins og úr einhverju scary ævintýri... Pan´s Labyrinth til dæmis.

 

Við lifðum eins og sannir spanjólar og borðuðum seint á “kvöldin” frá klukkan 22, 23 eða 24! Eitt kvöldið kíktum við á bar þar sem á hverju borði var krani þar sem maður gat sjálfur dælt ölinu í krúsina sína og borgað fyrir veigarnar svolgri loknu! Lítrarnir voru síðan taldir saman á stigatöflu þar sem við víkingarnir bárum að sjálfsögðu sigur úr bítum! Við náðum að torga 10 lítrum... reyndar vorum við orðin átta við borðið þegar leið á kvöldið þannig að smærri lítratala hefði verið skömm! Spurning hvort að svona lagað gæti gengið upp á Íslandinu góða!

Eftir að hafa vætt kverkarnar fórum við á mjög svo furðulegt kínverskt hlaðborð! Þar máttum við panta af matseðli eins mikið og við gátum í okkur látið og vorum þjónuð til borðs!

Þessa páskahelgi gengum við svo sannarlega af okkur hælana! Þetta var mjög skemmtilg upplifun og það er alveg bókað að við Óli eigum eftir að heimsækja þessa fallegu borg aftur!

Eftir stutt stopp í baunaveldi flaug ég svo á klakann kalda! Það var DÁSAMLEGT að komast heim og knúsa familíuna sína ekki hvað síst litlu krílin! Hitti hann Arnald Gunnar í fyrsta sinn verð ég nú að segja að hann er bara svo gullfallegur og yndislegur rétt eins og systkini og frændsystkini sín!

ã­sland 073

Arnaldur Gunnar

 

 

Ég var síðan svo heppin að ná bæði fermingu hjá Antoni og Þorsteini!

ã­sland 016

Fermingardagurinn hans Antons hann er í efri röð lengst til vinstri

 

ã­sland 051

Fermingin hans Þorsteins

 

Það var margt annað skemmtilegt brallað á meðan klakadvöl minni stóð t.d. kíkti ég í IKEA... púff hvað hún er stór eitthvað annað en frímerkið hérna í Odense! Ég keypti mér eitt stykki dúk og skerbretti! Á síðasta vetrardag hittumst við Sandra, Unnur, Lísa og Snæja og fengum okkur aðeins í glas sumar áfengt og aðrar ekki! Við mölluðum að sjálfsögðu Strawerry daquiry og mjög svo einstakan Mohito... Við systurnar skelltum okkur svo líka í bæinn og kíktum á Ölstofuna, Vegamót og Oliver... redduðum okkur síðan fari heim seinna um kvöldið... nákvæm tímasetning er ekki við hendi en að var amk eitthvað eftir miðnæti...

 

ã­sland 031

Við systurnar

 

ã­sland 035

Snæja bumbulína

 

ã­sland 037

Unnur og Lísa

 

 

 

Það var síðan yndislegt að geta aðeins slakað á í kotinu heima og borðað heimamat... Mmmmmm....

 

 

Einu orðið sagt frábær tími heima og æðislegt að hitta fjölskylduna! 10 mánuðir síðan ég var síðast á klakanum þannig að það var alveg kominn tími á þetta! EN það styttist í að við Óli flytjum heim! Ég er líka búin að ákveða að skella mér á klakann að loknum prófum núna í júní og að vera fram til júlí! Þannig það er ekki langt í að ég hitti þau næst! Læt nokkrar myndir fljóta með hérna að neðan!

 

 

ã­sland 070

Alma Maggey, Arnaldur Gunnar og Vilborg Lóa

 

ã­sland 065

Þorsteinn og Arnaldur Gunnar

 

ã­sland 093

Jóhann Valur, hann var eitthvað feiminn við myndavélina..

 

ã­sland 088

Vilborg Lóa, Alma Maggey og Stefán Logi

 

Meira af myndum má finna á myndasíðunni minni! Jæja læt það ekki vera lengra að sinni! Þangað til næst...

 

Knús í bili,

 

Berglind baun


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Tíma þjófur
MYNDASÍÐAN MÍN